Tillaga að nýju Íslandi

Við lifum á viðsjárverðum tímum. Við höfum horft á þjóðfélagið taka kúfvendingu og allar forsendur fyrir lífi okkar hafa brostið. Þeir sem við höfum valið til að fara með okkar mál, virðast vanhæfari en enginn og allar aðgerðir ríkistjórnarinnar hafa miðast við að gæta hagsmuna allra annarra en almennings í landinu. Almenningur skal blæða fyrir bruðl og hugsunarleysi fárra. Og þetta er án þess að horfa á allt klúðrið í alþjóðasamskiptum, þar sem stjórnin er að falla að öllum kröfum án þess að velta því fyrir sér, að því er virðist, hvort við þurfum að standa undir þessum kröfum eða ekki. Hótanir og kúgun fær ríkistjórnina til að gefa eftir. Þetta er ekki ríkistjórn sem tekur slaginn. Hefði þessi ríkistjórn setið á þeim tímum er við deildum við Breta um fiskveiðilögsögu, þá væru breskir togarar enn að skrapa sjávarbotninn upp undir fjörum landsins.

Forsætisráðherra hefur sagt að það sé ekki til “plan B”. ESB aðild og eftirgjöf varðandi Icesave er bara eitthvað sem við verðum að taka á okkur. Kennum öðrum um og fáum svo vinnu í Brussel. Þetta virðist vera dagsskipunin. Fámenn klíka hefur tekið ákvörðun, þvert á vilja þjóðarinnar og henni skal fylgt eftir. En hvað ef það er til “plan B”, jafnvel C, D, E og allt upp í Ö. Hvað ef þetta væri nú ekki svo skítt og við þyrftum ekki alla þessa eftirgjöf. Það að ríkistjórnin sjái ekki hina farsælu leið, þýðir ekki að hún sé ekki til staðar.

Leiðin er til og hún er alveg ótrúlega einföld. Ef sú leið sem ég er að tala um, yrði tekin upp, þá værum við að horfa á nokkra mánuði í mesta lagi, þangað til þjóðfélagið væri farið að taka við sér. Leiðin kollvarpar hins vegar þeirri hugsun sem við höfum rekið þetta þjóðfélag á, allt frá 1904, er við tókum ráðherravaldið heim og hófum leiðin til frelsis. Leiðin er rótæk, en mun hafa í för með sér meiri hagsæld og minni sveiflur innan hagkerfisins. Hún mun verða til þess að við verðum þjóðfélag eignar en ekki skulda.

Þessi leið verður ekki kynnt í stuttum texta, þannig að ég hef ákveðið að brjóta þetta aðeins upp og mun þessi greinaflokkur minn birtast núna næstu daga. Ég mun byrja á að fjalla um eðli fjármagnsins og tilgang þess í samfélagi mannanna, þar sem það er nauðsynlegt að sjá lygina sem hefur verið haldið að okkur öll þessi ár. Ég mun svo koma að hinu nýja kerfi, lausninni sem mun leiða okkur fram á veginn.

Hér má lesa næsta pistil.


mbl.is Áfram deilt um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að bjarga ESB klúðri?

Hollenski fjármálaráðherran gagnrýnir mjög regluverk ESB enda ekki furða. Íslensku bankarnir voru reknir eftir þessu kerfi og voru að gera það sama og allir hinir evrópsku bankarnir. Ástæðan fyrir því að ESB gengur svona hart gagnvart því að við tökum á okkur allt Icesave klúðrið er til þess að ESB regluverkið hrynji ekki. Það er nefnilega þannig að komi Ísland til með að viðurkenna það augljósa, að regluverkið var ekki fullkomið, þá er allt bankakerfið í Evrópu í upplausn. Með því að neita að viðurkenna að þetta sé eitthvað sem geti gerst hvar sem er í Evrópu, þá er verið að vonast til þess að evrópska kerfið verði ekki gagnrýnt og jafnvel riði til falls. Evrópska kerfið stendur á brauðfótum og getur fallið hvenær sem er.

Regluverkið frá ESB gerði ekki ráð fyrir því að allir bankar eins samfélags færu á hliðina á sama tíma og það áður en búið væri að byggja upp tryggingasjóðinn. Þetta skelfir ESB því það eru fleiri lönd í sömu stöðu og Ísland hvað þennan tryggingasjóð áhrærir. Fórna á Íslandi til að bjarga ESB.


mbl.is Bos: Aldrei aftur Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og eru menn hissa?

Ef núverandi ríkistjórn nær fram markmiðum sínum, þá verðum við þjóð sem þarf að greiða meira í vexti, af einhverju láni sem við tókum aldrei, en sem nemur þeim umfram gjaldeyri sem við höfum hingað til haft til ráðstöfunar. Svo eru "lánadrottnarnir" með eignarupptöku ákvæði (sem þeir gera svo sem ekki ráð fyrir að nýta sér, nokkuð sem við höfum nú heyrt áður þegar bankar taka eignir að veði) ef við gætum ekki borgað. Svo til að kóróna vitleysuna, þá er keyrt á fullu inn í bandalag sem hefur það að markmiði að verða ríkjasamband í anda BNA. Þannig að við komum til með að "skulda" tveimur aðilum innan ríkjasabandsins alla okkar framleiðslu og vera svo undir stjórn bjúrokrata sem taka málstað stóru aðilanna, en við erum ekki einn þeirra.

Þetta er ósköp augljós framtíðarmynd sem ríkistjórnin er að teikna og því skiljanlegt að fólk vilji út. Þetta gerir svo ástandið enn verra hér heima þar sem það verða sífellt færri sem þurfa að bera klafann.

Það er ekki spurning að það þarf að hafna ESB og Icesave frumvörpunum, þjóðinni til heilla. Það að blanda kosningunum um þessi mál saman við einhverjar væntingar um fall ríkistjórnarinnar er mjög óábyrgt tal og engöngu til þess fallið að þingmenn innan ríkistjórnarflokkanna, sem hafa þá sannfæringu að fella frumvörpin, samþykki þau til að bjarga ríkistjórninni. Þetta eru þannig mál að það verður að kjósa um þau út frá framtíðarmöguleikum þjóðarinnar, ekki einhverjum væntingum um stjórnarslit eða áframhaldandi setu.

Íslendingar búa yfir auðlindum sem aðrar þjóðir öfunda okkur af. Að ganga að þessum samningum, mun útiloka okkur frá því að njóta arðs af þeim, þær verða ekki okkar. Gefum okkur að það finnist ekki olía á landsvæðum sem við höfum til umráða, heldur lítum til þess sem við þegar höfum. Við erum með fiskimið sem enn er að gefa okkur afla og t.d. Bretar og Spánverjar hafa litið til. Svo erum við með orku sem hægt er að framleiða ódýrt og með aukinni tækni verður sífellt auðveldara að flytja hana yfir til Evrópu. Svo er það drykkjarvatnið, en nú þegar er farið að bera á miklum skorti á vatni í Evrópu og sá skortur mun aukast töluvert í framtíðinni.

Þá er spurningin þessi. Ætlum við að afsala okkur framtíð okkar, eða ætlum við að halda haus og selja svo ESB fisk, orku og vatn á verði sem við ákveðum. Ekki láta glepjast af hótunum, við eigum möguleika á framtíð sem er önnur en að verða hráefnanýlenda í stíl við Svalbarða. Það að ríkistjórnin sjái ekki aðra lausn, plan B, þýðir ekki að lausnin sé ekki til staðar. Það er nefnilega svo að okkur hættir til að yfirsjást einföldustu lausnirnar þar sem við trúum því ekki að þær gætu komið að gagni.


mbl.is Framtíðin utan Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið?

GGE er í eigu íslensku bankanna og íslensku bankarnir eru í eigu ríkisins og við erum ríkið. Þetta er ekkert vandamál. Við viljum ekki þessa framkvæmd og þá á ríkið að gera okkar og bankarnir að gera ríkisins og þannig gerir GGE það sem við viljum. Hættum hykleríinu.
mbl.is Fréttaskýring: Einkavæðing HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lán er engin lausn

Það er engin lausn að taka lán í því árferði sem er núna. Við tókum þessi lán til að byggja upp gjaldeyrisvaraforða. Einhversstaðar las ég að við værum með þennan gjaldeyrir liggjandi á bankabók í BNA á skítavöxtum á meðan við borgum umfram meðalvexti fyrir lánin. Í mínum huga eigum við að borga þessi lán til baka. Gjaldeyrisvaraforðann eigum við svo að byggja upp á eðlilegan hátt, með útfluttningi.

Við verðum að átta okkur á því að peningar hafa ekki verðgildi, það er undirliggjandi framleiðsla sem er verðmætið sem fjármagnið byggir á. Að ætla að gera fjármagn verðmætt með því að nota fjármagn til þess þ.e. annan gjaldmiðil, er ekki rétt leið, er hreinlega bara bull.

Í fáránleika tilverunnar í dag eru stjórnmálamenn all of uppteknir af gamla kerfinu, kerfinu sem hefur verið að éta okkur lifandi undanfarnar aldir. Nú er kominn tími til að hætta að hugsa í gamla þrælakerfinu og taka upp nýtt kerfi sem byggir á raunverulegum verðmætum og ekki lánaþrælkun fjármálakerfinsins.

Hefur fólk almennt pælt í því hversu vitlaust það er að láta bankana sjá um að dæla út fjármagni í formi lána? Ef bankarnir láta okkur fá fjármagn t.d. 100.000.000 á 6% vöxtum, þá vantar fjármagn fyrir 6.000.000 þannig getur það gerst að einn og einn aðili geti borgað upp allar skuldir sínar, en þjóðfélagið í heild getur aldrei borgað upp allar skuldir. Við erum föst í neti fjármálageirans.

Bankarnir eru ekki eitthvað sem er okkur lífsnauðsyn, við getum vel verið án þeirra í þeirri mynd sem þeir hafa starfað í dag. Við þurfum bara að sýna þor og breyta kerfinu og taka upp kerfi þar sem einstaklingurinn nýtur góðs af framleiðslu samfélagsins.

Við eigum að hætta að hugsa í þessum skuldum og fara að lifa lífinu á þann hátt að við séum frjálsir einstaklingar.


mbl.is 200 milljarðar á gjalddaga 2011
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"I have in my hand a piece of paper"

Neville Chamberlain var mjög jákvæður þegar hann steig úr flugvélinni sinni eftir að hafa spjallað við Hitler í Munchen. Chamberlain hafði ekki hugmynd um hverju hann veifaði þarna um árið, annað en franski forsætisráðherran Édouard Daladier sem hafði verið með honum á þessum örlagaríka fundi. Þegar Daladier lenti í París og sá fjölda manns æða að flugvél sinni, hélt hann að múgurinn ætlaði að taka hann af lífi. Þegar honum var tjáð að fólkið væri að fagna honum vegna samningsins við Hitler á hann að hafa sagst vorkenna þeim þar sem það augljóslega vissi ekki hvað hann og Chamberlain höfðu gert.

Einhverja hluta vegna kemur þessi Munchenarsamingur og viðbrögð Chamberlains í huga mér þegar ég hlusta á Steingrím fjalla um IceSave. Hann talar eins og þetta muni tryggja okkur velsæld um komandi tíð, eða eins og Chamberlain sagði "peace in our times". Ég er hins vegar hræddur um að pappírinn hans Steingríms sé jafn verðlaus og pappírinn hans Chamberlain.

Ef tveir menn koma í banka og biðja um lán, annar segist ekki skulda neitt en hinn segist skulda slíkar upphæðir að allur peningur hans muni fara í það næstu árin að greiða vextina og síðan eftir sjö ár muni allur pakkinn, sem hugsanlega hefur ekki náðst að greiða upp með óskilgreindum eignum, falla á hann. Hver fær lánið. Örugglega ekki þessi sem getur ekki bætti við baun í afborgarnir.

Það að halda því fram meðal annars að lánshæfi ríkisins aukist við þennan samning er bara barnaskapur. Þessi samningur er eingöngu tilkominn til að þýðast Breta og Hollendinga svo þeir kjósi okkur ekki út úr ESB. Innganga með slíkum verðmiða mun gera það að verkum að það skiptir okkur engu framtíðin, innan eða utan ESB. Ráðamenn verða að hafa í huga orð Bismark þegar hann sagði ríki ekki eiga vini heldur hagsmuni. Svo lengi sem hagsmunir erlendra ríkja liggja með okkar, þá erum við látnir halda það að við séum vinir þeirra, en um leið og þar losnar á milli, þá er okkur sparkað svo um munar. Síðustu mánuðir ættu að vera okkur lexía í þeirri pólitíkinni.

Ríkistjórnin hefur mært þennan samning upp úr öllu og sagt þetta geta gengið eftir. Hins vegar verður þetta fólk að átta sig á einu, það er ekki hægt að gera áætlanir út frá forsendum dagsins í dag. Til dæmis má gera ráð fyrir að skattatekjur ríkisins verði ekki nærri þær sem gert er ráð fyrir því fólk mun einfaldlega ekki dvelja hér nógu lengi til að greiða þessa skatta. Bara með því að skoða til sölu dálkinn á Barnalandi, er hægt að sjá gífurlegan fjölda einstaklinga sem eru einfaldlega að yfirgefa landið. Þessi hópur mun stækka svo um munar verði að ráðabruggi þessarar ríkistjórnar.

Steingrímur spurði hvort við ætluðum að berjast eða gefast upp. Ég ætla að berjast og er því mótfallinn þessum samningi. 


mbl.is Icesave-skuldbindingarnar ekki hættulegastar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný sýn fyrir nýtt Ísland

 Íslendingar standi frammi fyrir því nú, hvort þeir vilji breytingar eða halda áfram á hinni gömlu þekktu braut. Auðvitað er gott að halda sig við það sem maður þekkir, en þá veit maður hvers er að vænta. Hver kynslóð kemur til með að fá sín efnahagsáföll, en vissan er samt svo góð.

Það er hins vegar spurning hvort þetta sé okkur fyrir bestu, hvort það sé ekki til betra kerfi, kerfi sem byggir á hagsmunum einstaklinganna innan samfélagsins, en er ekki eins og núverandi kerfi, þar sem við einstaklingarnir erum fæða fjármálakerfisins.

Fyrir þá sem eru tilbúnir til að taka "áhættuna", horfa út fyrir staðalmyndir og þær blekkingar sem haldið hefur verið að okkur, þá er til lausn. Það er til annars konar kerfi sem við getum tekið upp. Kerfi sem byggir á því að gæta hagsmuna einstaklinganna innan samfélagsins og er ekki hannað af bankamönnum þeim til handa. Við getum losað okkur undan þeirri ánauð sem við höfum þurft að þola allan þennan tíma og tekið upp nýtt fyrirkomulag okkur til heilla.

Til þess að gera betur grein fyrir því hvernig hið nýja kerfi virkar, þá er nauðsynlegt að fjalla aðeins um það gamla. Það er margt við það kerfi sem almennt er ekki vitað. Því hefur verið haldið leyndu til þess að villa okkur sýn. Einnig hefur okkur verið kerfisbundið innrætt sú hugmynd að við getum ekki án þess verið, að við verðum að bjarga bönkunum sama hvað. Það sé ekkert líf án bankanna. Sanleikurinn er hins vegar sá að við getum vel lifað án bankanna, bankarnir geta hins vegar ekki lifað án okkar. Við þurfum að fella vef blekkingarinnar og hefja vinnuna að nýju og betra samfélagi. Nú er tíminn, þegar við stöndum frammi fyrir brostnu kerfi, þá er ekki tíminn til að sparsla í sprungur og sölumála gamla kerfið, heldur verðum við að endurskipuleggja okkur og taka upp nýtt.

Ég mun næstu daga birta hér færslur þar sem hið nýja kerfi er kynnt og hvernig það er lausnin á okkar málum. Þetta kemur í nokkrum bútum þar sem textinn yrði of langur til að þola eina blog færslu. Ég læt fylgja með skjal sem ég og bróðir minn sendum á alla þingmenn og aðra hagsmunaaðila. Þar er farið yfir það helsta í hugmyndafræðinni sem boða er, auk þess sem við sendum frá okkur aðgerðaráætlun svo hrinda megi þessu í framkvæmd.

Ísland á sér framtíð, hún byggir á okkur sjálfum, ekki öðrum.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Gengur þetta upp?

Ég er ekki viss um að það komi okkur best að draga saman útgjöld ríkissjóðs á þann hátt að minnka framkvæmdir sem veita atvinnu. Væri ekki nær að halda þeim áfram og spara þá á móti greiðslur úr atvinnuleysissjóði.

Svo er ég ekki að sjá að þessi ríkistjórn geti verið með hallalausan ríkissjóð árið 2012. Ég bara skil ekki hvernig hægt er að halda því fram þegar sú sama ríkistjórn er að hella okkur út í hrikalegar skuldir, skuldir sem við erum á mörkunum með að standa undir. Hvernig á þá að skila hallalausum rekstri án þess að skera starfssemi ríkisins í núll og skattpína almenning upp í hárrætur.

Við eigum að taka okkur smá tíma og hugsa málið. Við eigum að slá á frest öllum viðræðum um Icesave þangað til við vitum í raun hvað þetta er sem við þurfum að semja um og hver réttur okkar er. Við eigum svo að binda enda á "samvinnuna" við gjaldeyrissjóðinn og aðra aðila sem eru ekki að vinna fyrir okkur heldur gæta bara hagsmuna erlendra kröfuhafa og þeirra sem viðhalda vilja hinu gamla fjármálaumhverfi.

Gangi vilji ríkistjórnarinnar eftir, þá munum við búa í samfélagi þar sem er lítil sem engin þjónusta af hálfu ríkisins og mjög háir skattar. Fyrirtæki munu eiga erfitt uppdráttar vegna lítillar neyslu og erfiðra skilyrða auk þess sem fólk mun flýja land í umvörpum og það verður virkilega erfitt fyrir þá sem eftir verða. Sú framtíð sem mér birtist er ekki það nýja Ísland sem ég tel okkur geta skapað ef við höldum rétt á spöðunum.


mbl.is Vildu meiri niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þörf á gagngerum breytingum

Það hefur svo sem ekki verið launungamál að evrópskir bankar standa illa. Reyndar er ég persónulega undrandi á því hversu lengiþessir bankar hafa hangið saman. Hann er hins vegar mjög veikur grunnur þeirra og ástandið má ekki halda lengur sömu leið án þess að það komi til með að velta bönkunum.

Seðlabanki Evrópu er búinn að gefa 2010 upp sem árið sem lífgar eða lemstrar bankana. Þetta er ekki langur tími, næsta ár. Það er sífellt verið að klifa á að það þurfi að endurreisa bankana, en það er hins vegar ekki rétt nálgun. Við erum búin að lifa núna í nokkur hundruð ár þar sem núverandi kerfi hefur þróast í þá átt að einstaklingar sem reka bankana hafa náð til sínu flestum eignum og völdin eru svo mikil að einstaklingar og ríkistjórnir þora ekki að fara gegn þeim, haldandi það að bankarnir séu lífsnauðsynlegir samfélagi mannanna.

Þetta gæti ekki verið meira fjarri lagi. Bankarnir eiga að vera þjónustustofnanir ekki drottnandi stórveldi. Við þurfum að breyta hugsun okkar og taka inn alveg nýja hugsun. Hugsun þar sem þjóðfélagið stjórnar peningamálum en ekki einhver fámenn klíka sem stundað hefur einokun á fjármagnsframleiðslu, þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins til slíks.

Breytingarnar eru einfaldar. Reyndar svo einfaldar að fólk heldur að þær geti ekki gengið upp sökum einfaldleikans. Það er hins vegar þannig að þegar virkilega þarf að taka til hendinni, þá eru það einföldu málin sem virka best.

Legg til að ríkistjórnin hætti að fleygja fram smjörklípum hægri og vinstri og fari að vinna vinnuna sína. Þá þurfum við ekki að velta fyrir okkur stöðu evrópskra banka, við verðum búin að snerta botnin og farin að vinna okkur út úr þessu ástandi.


mbl.is Óttast bankakrísu 2010
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýska vélin dregur úr hraðanum

Samdráttur í útfluttningi getur hæglega komi til án þess að nokkuð mikið sé að innanlands, enda útflutningur háður getu hinna erlendu kaupenda. Það sem hins vegar vekur athygli í þessari frétt, eru upplýsingarnar um minnkandi innflutning. Þetta bendir til þess að allt efnahagslífið sé að hægja á sér og þá spyr maður sig hvert mun þetta leiða.

Eftir því sem hagkerfi hægja á sér, því erfiðara er að koma þeim af stað aftur. Við horfum upp á þetta í Japan, en þar hefur lítið gengið að koma efnahagnum í gang frá því hann stöðvaðist á síðustu öld. Þýskaland hefur ekki almennilega náð sér á strik eftir að þýsku ríkin tvö voru sameinuð 1989, nokkuð sem vekur hjá manni ugg varðandi möguleikana á að það náist að koma kerfinu þeirra af stað í kjölfarið á þessu ástandi sem nú ríkir.

Þýskaland er kjarninn í ESB og ef illa gengur þar, mun það leiða til erfiðleika í hinum ríkjunum. Það er augljóslega ekki að koma í veg fyrir þrengingar, vera landsins í ESB. Hingað til hefur verið litið til vandræða Íra og Spánverja sem einhvers sérfyrirbæris sem ekki eigi við um sambandið í heild sinni. Þessar fréttir og aðrar svipaðar sem hafa verið að berast frá öðrum löndum ESB, sýna að ástandið þar inni er ekki eins gott og menn vilja vera að láta. Næstu mánuðir verða áhugaverðir að sjá, ekki síst þegar kemur að hausti. Fólk er almennt rólegra á sumrin, en þegar fer að hausta og fólk ætlast til að hlutirnir fari aftur í sama farið, þá má búast við mótmælum sjái fólk ekki breytingar.

Stjórnmálamenn þessara landa hafa nú undanfarnar vikur verið að tala um það að nú sé ástandið allt að fara batnandi. Hins vegar sýna tölur annað. Þetta vekur hjá manni þær spurningar hvort stjórnmálamenn viti ekki hvað þeir eru að segja, eða hvort þetta sé sagt til að draga athyglina frá raunverulegum aðstæðum. Ef aðgerðir þeirra hingað til hafa ekki dugað og gripið hefur verið til smjörklíputækni, hvað gerist þá ef þeir höndla ekki ástandið og það fer að vera meira áberandi.


mbl.is Samdráttur í útflutningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausnin liggur hjá okkur

Eins og fram kemur í þessari frétt og ég hef sagt áður, þá er þetta ástand hér á landi hluti af alþjóðlegu ástandi. Við getum ekki leyst neitt hér heima með því að sækja til lausna erlendis, heldur verðum við að leysa þetta sjálf á okkar eigin forsendum.

Nú er kominn tími fyrir nýja hugsun, hugsun sem hafnar þeim hugmyndum sem notast hefur verið til hingað til, hugsunum sem byrja upp á nýtt.

Landsframleiðsla er að dragast saman vegna þess að neysla er að dragast saman. Það er minna framleitt og dregið verið úr þjónustu vegna þess að gert er ráð fyrir því að ekki sé, eða verði til, fjármagn til að standa undir aukinni framleiðslu. Þetta er rangur hugsunargangur. Fjármagnið á ekki að ráða framleiðslunni, heldur á framleiðslan að ráða fjármagninu.

Eini tilgangur fjármagns er að aðvelda eignatilfærslu verðmæta. Fjármagnið sjálft er í eðli sínu verðlaust. Það er hlutverk ríkisins að sjá til þess að alltaf sé til fjármagn í réttu hlutfalli við þau verðmæti sem til staðar eru og að þessu fjármagni sé skilað til samfélagsins á sanngjarnan hátt svo auðvelda megi eignatilfærslu þeirra verðmæta sem til staðar eru.

Þetta er ekki flókið verk og tekur ekki langan tíma. það þarf hins vegar að hefja verkið og þá mun þetta ástand sem við höfum búið við, leysast. Tími er kominn til þess að ráðamenn hætti að hugsa í hugmyndafræði sem hefur sýnt sig að virkar ekki og fara að hugsa utan hins hefðbundna kassa.


mbl.is 3,6% samdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími komin fyrir nýja hugsun

Heildartekjur hins opinbera, sem námu 152,7 milljörðum króna á 1. ársfjórðungi 2009 samanborið við 164,4 milljarða króna á sama tíma 2008, lækkuðu um ríflega 7% milli ára. Þessi mikla tekjulækkun skýrist fyrst og fremst af verulega minni tekjum af vöru- og þjónustusköttum, en tekjuskattar skiluðu hins vegar svipaðri fjárhæð í krónum talið milli ára

Það ætti ekki að koma á óvart að tekjur ríkissins af neyslusköttum og gjöldum hafi dregist saman. Það er líka eðlilegt að tekjurnar séu enn þá svipaðar þegar litið er til tekjuskatts. Hins vegar má búast við því að tekjur vegna tekjuskatts komi til með að minnka þar sem ríkið er að ætlast til þess að fólk lækki við sig laun, svo ekki sé minnst á þá sem eru hreinlega að missa launin sína alfarið. Auðvitað kemur skattahækkun til að laga það eitthvað, en á móti kemur að tekjur vegna neysluskatta og gjalda mun dragast enn frekar saman með minnkandi ráðstöfunartekjum einstaklinga. Þessi vinnubrögð geta bara farið á einn veg. Það er nefnilega þannig að þegar skrúfað er fyrir súrefni til einstaklinga, þá endar það bara með því að þeir deyja.

Það er kominn tími á nýja hugsun hins opinbera þegar kemur að ráðstöfun fjármagns, framleiðslu þess og nýtingu. Eini tilgangur fjármagns er að auðvelda eignatilfærslu á verðmætum. Til þess að það geti gengið þá þarf að vera til fjármagn sem samsvarar þeim verðmætum sem eru til staðar í þjóðfélaginu. Það eru til verðmæti, en fjármagnið vantar. Það er því hlutverk ríkisins að sjá til þess að þetta fjármagn komist til einstaklinganna í landinu svo hægt sé að skiptast á þeim verðmætum sem til staðar eru. Þá mun þjóðfélagið fara að taka við sér og þetta efnahagsástand leysast.

Þetta er ekki flókið og tekur ekki langan tíma. Það þarf bara að hefja verkið.


mbl.is Mikill halli á rekstri hins opinbera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraflað yfir skítinn

Allt átti að vera uppi á borðinu. Algert gegnsæi. Þetta er nú búið að vera meiri dellan hjá þessu fólki. Almenningur hefur ítrekað beðið eftir skýringum og upplýsingum um Icesave og enginn virðist hafa vitað neitt, ekki einu sinni ríkistjórnin sem bara ypti öxlum og sagði við vitum þetta ekki nákvæmlega.

Svo er allt í einu búið að semja. Hvernig getur verið hægt að semja um eitthvað sem enginn veit hvað er?

Ég legg til að kosið verði á þing í lok Júlí og að þeir sem eru og hafa verið á þingi fái ekki að bjóða sig fram. Það þarf nýtt fólk. Íslendingar hafa kallað eftir Nýja Íslandi frá því í fyrra og ég get sagt fyrir mitt leiti að þetta er ekki það Ísland sem ég er að óska mér.


mbl.is Blaðamannafundur kl. 16
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Bretar ekki látnir bera ábyrgð

Vissulega voru þarna háar upphæðir undir hjá bresku almenningi. Hins vegar er alveg ljóst að aðgerðir Breta í okkar garð og annarra "bandamanna" okkar í kjölfarið á þessum afdrifaríku október dögum, hafa kostað okkur mikið. Samkvæmt þessum samningi þá virðist sem við ætlum að borga allt og meira til í formi vaxta í sjö ár án þess að Bretar séu látnir koma til móts við okkur vegna þess tjóns sem aðgerðir þeirra sannanlega orsökuðu.

Þessi ríkistjórn hefur hagað sér ótrúlega og þessi ofsi hennar til að koma okkur í þrælakistu "bandamanna" okkar mun verða þess valdandi að hér mun fjöldi fólks líða fyrir næstu áratugina.

Nú tel ég kominn tími á að þetta fólk sem kosið var hætti að hugsa í skammtíma sérhagsmunum og fari að vinna að því að leysa málin sem þarf að leysa.


mbl.is Bretar fagna Icesave-samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Semjum um nettó, ekki brúttó

Svo fremi ég hafi ekki ruglast á núllum, þá virðist sem "sérfræðingarnir" telji skuld okkar vera í kringum 32.500.000.000 sem er nokkuð minna en þessir 650. Svo veltir maður því fyrir sér hvort þetta sé meira eða minna? Hvað svo með vextina? Við getum ekki samið um einhverja skuld fyrr en við vitum hversu há hún er.

Mín tillaga er sú að Bretarnir standi skil á þessum ábyrgðum gagnvart sínu fólki (ætti ekki að vera erfitt að fá Brown til þess, enda sárvantar vinsældir). Síðan á að setja vinnu í að meta eignirnar og þegar það er búið, þá er hægt að ganga frá málinu. Við eigum ekki að taka á okkur einhverjar vaxtagreiðslur í sjö ár þar sem Bretarnir eiga sinn hlut í okkar vandamálum. Ef við borgum 5% vexti á ári, þá erum við að líta til þess að þetta eru 32.500.000.000 á einu ári, eða það sama "sérfræðingarnir" telja skuld okkar geta verið. Þannig að við erum að borga þessa skuld margfallt til baka. Ekki sé ég hag landsins í því.


mbl.is Steingrímur fær fullt umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband