14.5.2007 | 14:16
Léleg stærðfræði þetta.
Hvernig getur stjórn með eins manns meirihluta verið fallin, þegar stjórn í minnihluta hefur möguleika á að starfa? Það er varla að maður geti hugsað þá hugsun til enda að slíkir stærðfræðisnillingar komist til valda í fjármálaráðuneytinu. Þetta ætti samt ekki að koma manni á óvart þar sem kosningabaráttan gekk út á það að eyða og aldrei var almennilega fjallað um það hvaðan peningarnir áttu að koma.
Minnihlutastjórnir verða til í kjölfar stjórnarkreppu þegar allar leiðir meirihlutastjórna hafa verið þaulkannaðar og ekkert gengur. Þá er farið út í þá neyðarlausn að mynda minnihlutastjórn með einhverskonar dómsdagssamþykki minnihlutaflokks, sem þá fær úrslitaráhrif og meiri en fylgið segir til um. Það er engin stjórnarkreppa í gangi hér og því ekki ástæða fyrir þessu. Velti því líka fyrir mér hvers vegna VG eru tilbúnir að koma Framsókn í þessa oddastöðu, þegar hamrað hefur verið á því að það sé óeðlilegt valdahlutfall búið að vera í stjórninni síðustu ár.
Þetta er tóm valdagræðgi og ekkert annað. Það á að kafsigla skútunni sama hvað. Það er kominn tími fyrir þetta vinstrafólk að vakna og horfast í augu við raunveruleikann.
ÞIÐ TÖPUÐUÐ!!!!!
Hafa áhuga á myndun minnihlutastjórnar í skjóli Framsóknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.